Hah! Það er ekki fyrr búið að reka mig úr einni hljómsveit, en mér hefur verið boðið sæti í tveimur öðrum sveitum.
Annars vegar er Steinunn búin að bjóða mér að stofna hljómsveit sem við værum bara tvö í. Hún myndi spila á flautu, píanó og bassa, en ég myndi syngja. Þessi hljómsveit gæti t.d. heitið „Hjóna-bandið“ – sem væri sniðugt.
Hins vegar er um að ræða sveit sem hefur allar græjur: trymbil, hljómborðsleikara, vanan bassamann og gítarista. Félagar mínir í gamla bandinu voru ekki með neinn á hljómborð.
Ég sé fram á að vera komin á forsíður tónlistarblaðanna áður er Tony Blair verður skriðinn út úr æfingarhúsnæðinu…
Samt gæti líka farið svo að ég leggi bara hljóðnemann á hilluna.