Held að fátt sé betur til þess fallið að veita falska öryggiskennd en brunaviðvörunarkerfi. Sat í gær fund á Minjasafninu þegar brunaboðinn fór að væla. Engum datt í hug að hlaupa út, heldur biðum við eftir að helv. tækið þagnaði. Vegna framkvæmdanna sem standa yfir á safninu fer brunakerfið í gang 2-3 á dag. ístæðan …
Monthly Archives: nóvember 2006
Sjálfboðaliði?
Ég hef nokkrum sinnum reynt að nota þessa bloggsíðu til að betla aðstoð frá fólki útí bæ. Þannig tókst mér að fá lagaðan bilaðan vatnskassa á gamla klósettinu og greitt úr vandræðum með blöndunginn á gamla Volvo-num mínum. Á bæði skiptin var raunar Kristbjörn þáverandi nágranni minn á ferðinni. Núna ætla ég að gera eina …
Húsbrotsmenn
Það er verið að brjóta niður Minjasafnið. Framkvæmdir við tengibygginguna milli okkar og fyrirhugaðs sýningarhúss Fornbílaklúbbsins eru hafnar og þessa dagana er verið að slá niður þá útveggi sem eiga að víkja vegna tengingarinnar við nýja húsið. Þetta þýðir að öðru hvoru ríða yfir dynkir líkt og um jarðskjálfta væri að ræða. Stundum heyrist ekki …
Íslandsmet í rökfimi
Kaninkan er aftur komin upp. Fagna því allir góðir menn! (Nei, ég mun ekki afleggja þennan frasa, þótt hann fari í taugarnar á Gulla Briem.) # # # # # # # # # # # # # Á kvöld sá ég Hjálmar írnason setja Íslandsmet í rökfimi án atrennu. Hann var í Kastljósinu ásamt …
Ragnheiður reiknar
Ekki sá ég Kastljósþáttinn á mánudagskvöld þar sem Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Róbert Marshall ræddu kosti og galla prófkjara. Hins vegar las ég í fréttablaðinu í dag að Ragnheiður hefði í þættinum kynnt hugmynd sem sögð var ný – þess efnis að frambjóðendum væri ekki raðað í sæti heldur fengju þeir hlutfall af atkvæði (sá sem …
Banatilræði
Á kvöld var mér sýnt banatilræði. Það kom úr óvæntri átt. Ekki átti ég von á að Steinunn vildi mig feigan. Þegar ég kom heim úr boltanum í kvöld og rölti inn í eldhús að sækja mér vatnsglas, lá freistandi lítill Baby-Bel ostur á eldhúsbekknum. Eins og dyggir lesendur þessarar síðu vita, er ég sólginn …
Fyrsta sjónvarpstækið
Uppeldisfræðingar hafa áhyggjur af því hversu mörg börn hafi eigið sjónvarpstæki í herberginu sínu. Fyrir vikið sé sjónvarpsgláp ekki lengur fjölskylduathöfn heldur liggi gríslingarnir í klámi og ofbeldi fram á rauða nótt. Sjálfur eignaðist ég mitt fyrsta sjónvarp sex eða sjö ára gamall, árið 1981 eða 1982. Fram að þeim tíma hafði fjölskyldan verið sjónvarpslaus …
Að kunna ekki að skammast sín
Það hlýtur að vera drullusvekkjandi að tapa naumlega í prófkjöri eða verða undir í uppstillingu á framboðslista. Ég skil t.d. vel að Guðrún Ögmundsdóttir sé stúrin að hafa tapað hjá Samfylkingunni og fallið af þingi. Það býst engin við öðru en að hún kveinki sér undan prófkjörum og óréttlæti þeirra, enda vantaði hana bara herslumuninn. …
Hoover á tröppunum?
Sagan segir að þegar Johnson forseti var spurður að því hvers vegna hann losaði sig ekki við Edgar J. Hoover, hafi hann svarað eitthvað á þá leið að betra væri að hafa Hoover inni í tjaldinu að pissa út – en fyrir utan það og pissa inn. Mér varð hugsað til þessara orða í morgun …
Aulabárður
Argh! Hversu mikill aulabárður get ég verið! Fór að fikta í gömlum færslum, m.a. til að leiðrétta innsláttarvillur og koma lagi á skáletranir. – Nema hvað ég endaði á að eyða helmingnum af þessu, þar af heilum færslum. Er tölvublindu minni engin takmörk sett?