Valsblaðið kom inn um bréfalúguna áðan. Það er nú ekki oft sem maður er minntur á að Norðurmýrin á víst að heita Valshverfi samkvæmt skiptingu borgaryfirvalda. Sögulega séð er hún náttúrlega Framhverfi, enda var gamli Framvöllurinn fyrir neðan Stýrimannaskólann.
ívarpið í blaðinu vakti athygli mína. Þar skrifar sóknarpresturinn í Hallgrímskirkju einhverja jólahugvekju með Biblíutilvitnunum og langsóttum tengingum við fálkann í merki Vals.
Þessi helgislepja Valsmanna er ekki ný af nálinni. Félagið er meira að segja með kapellu á miðju íþróttasvæðinu! Tengingin er jú sú að Séra Friðrik stofnaði liðið sem knattspyrnudeild KFUM – en fjandinn hafi það, FRAM var stofnað af kaupmannasonum í miðbænum 1908. Ekki fáum við samt formann Verslunarráðs til að skrifa ávörp í blöðin okkar.
Óháð því hvort rétt sé að tengja trúmál og íþróttir saman með þessum hætti, finnst mér líka augljóst að Valsmenn eru sérstaklega óheppnir í vali sínu á trúarbrögðum. Boðskapur Kristninnar gengur út á að elska óvini sína og rétta fram hinn vangann. Þetta kallast þrælasiðferði á góðri íslensku og er ekki vænlegt til árangurs á knattspyrnuvellinum.
Væri ekki nær að ísatrúarfélagið tæki eitthvert knattspyrnuliðið upp á sína arma. ísatrúarmenn hafa takmarkaða trú á mætti fyrirgefningarinnar, en eru vinir vina sinna. Það er ólíkt betri grundvöllur í keppnisíþróttum.
# # # # # # # # # # # # #
Um daginn fékk ég bókina um sögu Melaskólans í pósti. Ég lét nefnilega til leiðast og skrifaði pistil í bókina með minningum frá skólaárunum. Eitthvað virðist nú hafa skolast til í uppsetningunni, amk kemur mér spánskt fyrir sjónir að Þórarinn „Aggi“ Þórarinsson er sagður hafa útskrifast ári á eftir mér. Hann er örugglega tuttugu árum eldri.
En alltaf gaman að skoða gamlar myndir.
# # # # # # # # # # # # #
Megi Moggabloggið hreppa tölvuvírus!