Það hljómar alltaf jafnskringilega þegar George W. Bush talar um kjarnorkuvopn og segir orðið „nuclear“ – og ber það fram „njú-kú-le-ar“ en ekki „njúkler“. Þetta er oft haft til sannindamerkis um að forsetinn sé málhaltur fáviti.
Hið rétta í málinu er víst að „njú-kú-le-ar“ mun vera fullgildur framburður á orðinu – og jafnvel ríkjandi framburður á mörgum stöðum.
Þetta höfum við aðdáendur Morrissey náttúrlega vitað lengi – enda þekkja allir lagið „Everyday is like Sunday“ (sem er líklega næstbesta lag sem Morrissey hefur sungið, Smiths-árin meðtalin).
Það er samt alltaf pínkulítið skrítið að hlusta á lagið og heyra goðið syngja: „Come Armageddon. Come on njú-kú-le-ar war…“