Ekki komst ég á Bessastaði í dag þar sem íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent. Þangað var mér þó boðið – út á setuna í nefndinni sem valdi bækurnar í úrslitin. Ljóðhús Þorsteins Þorsteinssonar hrepptu hnossið í almenna flokknum, sem mér finnst mjög maklegt. Oft hafa verðlaunabækurnar í þessum flokki verið það sem kalla má „gjafabækur“ – …
Monthly Archives: janúar 2008
Æfingar
Steinunn beindi áðan óundirbúinni fyrirspurn til utanríkisráðherra, varðandi fregnir af því að danskar herþotur hefðu ítrekað á undanförnum árum brotið flugumferðaröryggisreglur og farið of nærri farþegavélum. Hún spurði ráðherra hvort þessar fregnir yllu ráðherra ekki áhyggjum í ljósi þeirrar stefnu stjórnvalda að bjóða hingað herþotum frá Danmörku og öðrum NATO-ríkjum. Svör utanríkisráðherra voru á þá …
Með koltjöru í fötu…
Þegar ég var á fyrsta og öðru ári í gaggó, reyndi ég að máta mig í listaspíruhlutverkinu. Eitthvað bögglaðist maður við að skrifa af ljóðum og lesa framúrstefnulegar ljóðabækur eftir skuggalega náunga, sem voru súrrealistar og ortu blóði drifin kvæði. Ég lét nokkrum sinnum draga mig á kvikmyndasýningar í Mír. – Og einu sinni vann …
Hirð-fífl
Eitthvert mesta aulahrollsmóment seinni ára í íslenskum fréttatíma, var þegar Guðmundur írni Stefánsson mætti eins og trúður í kjólfötum og lét einhvern voða fínan ekil keyra sig á eldgömlum og glæsilegum hestvagni til fundar við sænska kónginn að afhenda embættisbréfið. Hott, hott, allir mínir hestar! – Gat maður séð hann segja í huganum. Ég leyfi …
Hræsni?
Finnst engum neitt skringilegt við það að þjóðfélagið liggi nánast á hliðinni vegna þess að allir eru að rífast um hvað sé viðeigandi eða óviðeigandi umfjöllun um andlega heilsu Ólafs F. Magnússonar – en á sama tíma halda allir fjölmiðlar áfram að smjatta á harmsögufréttunum af bandarískum söngkonum sem kljást við taugaáföll og eiturlyfjafíkn fyrir …
Þorra Kaldi
Eftir á að hyggja voru það mistök að kaupa ekki dökkan og ljósan Kalda í ríkinu til að gera bragðsamanburð við þorrabjórinn frá litla brugghúsinu frá írskógssandi. Mér finnst bragðið þó ekki benda til þess að maður hefði fundið ýkjamikinn mun. Þetta er fínn bjór – en ekki eins góður og sá ljósi. Og hvers …
Karlinn með hattinn…
…stendur uppá staur – borgar ekki skattinn… o.s.frv. Nú væri gott að fá skattaráðgjöf frá lesendum. Á árinu 2007 vann ég að verkefni sem er ekki lokið. Upphæðin sem um ræðir er lægri en svo að ég þurfi að telja sérstaklega fram sem verktaki. Ég er enn ekkert farinn að rukka fyrir þessa vinnu. Og …
Mótmælafrí
Kjartan Magnússon er æfur yfir að einhver menntaskólakennari hafi gefið nemendunum sínum mótmælafrí. Þar er langt seilst í leit að sökudólgi. Hitt er auðvitað annað mál að það er kjánalegt að kennaragreyið hafi gert þessi mistök. Ég minnist þess þegar við Sverrir Jakobsson vorum að kenna kúrs í vísinda- og tæknisögunni við sagnfræðiskor fyrir nokkrum …
Nýr minnihluti myndaður
Feðginin Freyr og Freyja komu í heimsókn seinnipartinn og átu vöfflur á Mánagötunni. Þær stöllur, Freyja og Ólína, voru í essinu sínu. Fyrir vikið heyrðist ekki mikið í Silfri Egils, sem rúllaði í sjónvarpinu eftir að handboltinn var búinn. Með því að horfa með öðru auganu, fékk maður þó ágætis mynd af þættinum. Og ekki …
Gúllas
Málsverðurinn sem Nanna Rögnvaldar töfraði fram í Friðarhúsi í gærkvöldi var magnaður. Kjötið í ungversku gúllassúpunni var nautaskankar – sem mun vera ódýrasta kjötið á markaðnum en jafnframt það besta í svona súpu. Ég hef aldrei borðið jafn meyrt kjöt. Það hlýtur að hafa verið látið sjóða í hálfan sólarhring. Ingibjörg Haraldsdóttir las úr endurminningarbók …