Fórum seinnipartinn á kaffistofuna á Kjarvalsstöðum til að leiða saman vinkonurnar Ólínu og Freyju. Rétt rak augun inn á sýningu færeyska málarans sem kenndi sig við Mykjunes. Þetta er flott sýning sem vert er að skoða betur síðar.
Við Steinunn heimsóttum Mykjunes í Færeyjaferðinni miklu. Það er mikið ævintýri að fara út í eynna, en því miður var þétt þoka og skyggnið sáralítið. Þetta er eflaust geggjaður staður í góðu skyggni.
# # # # # # # # # # # # #
Luton er enn í frjálsu falli – jafnt inni á vellinum sem peningalega utan vallar. Fall annað árið í röð verður varla umflúið. Hvort það leiðir til gjaldþrots verður að koma í ljós.
Á móti má hugga sig við handboltann. Framstelpurnar unnu mjög mikilvægan sigur á Haukum og næsti leikur, gegn Stjörnunni, er því hálfgerður úrslitaleikur um titilinn.