Um helgina bárust þær fregnir að helv. kratarnir vilji bjarga kreppunni með því að láta okkur éta kjúlla og svín. Að sjálfsögðu brást vinstrigræna fjölskyldan á Mánagötu við þessum ögrunum með því að steikja sér kindakjöt í kvöldmatinn. Það ætti að kenna þessu liði! # # # # # # # # # # # …
Monthly Archives: mars 2008
Kreppuráðstafanir
Var á stórskemmtilegum aðalfundi einkahlutafélagsins Friðarhúss SHA í dag. Þar voru kynntir glæsilegir reikningar félagsins. Að sjálfsögðu förum við hernaðarandstæðingar að tilmælum ríkisstjórnarinnar, sem hvetur okkur til að greiða niður skuldir til að bægja kreppunni á brott. Á fundinum kom fram að eftirstöðvar bankalánsins sem tekið var fyrir kaupunum fyrir tveimur og hálfu ári séu …
Þar lá frændi í því
Les um það mér til ómældrar ánægju á Fram-vefnum að Safamýrarstórveldið er loksins farið að tefla fram 11-manna liði í fjórða flokki kvenna. Til þessa höfum við bara verið í 7-manna liðunum í þeim flokki. Fyrstu fórnarlömbin voru KR-stelpurnar undir stjórn Stefáns Karls frænda míns, sem hefur greinilega kennt Framstelpunum of vel á sínum tíma …
Lifi Grimsby!
Á dag fer fram úrslitaleikurinn í sendibílabikarkeppni neðri deildar liða í Englandi. Grimsby mætir Milton Keynes Dons. Það er ekki erfitt að taka afstöðu í þessum leik. Á fyrsta lagi heldur Bryndís vinkona mín með Grimsby. Og í öðru lagi er Milton Keynes Dons fyrirlitlegur klúbbur, sem hvergi skyldi þrífast.
Hvaða Ingólf?
Hún var eftirminnileg fréttin fyrir mörgum árum af fornleifauppgreftri í miðborg Reykjavíkur. Fréttakona á vettvangi spurði fornleifafræðing að störfum: „Eruð þið búin að finna Ingólf?“ – Hann leit á hana um stund og spurði svo: „Hvaða Ingólf?“ Þar fengu fornleifafræðingar nokkur rokkstig. Á sama hátt og fornleifafræðingar láta spurningar um nafngreinda „fyrstu landnámsmenn“ fara í …
Á dagskránni
Það er tvennt á dagskránni eftir vinnu: i) Að mæta á spurningakeppnina á Grand þar sem Palli Hilmars er í dómarasætinu. ii) Að gúffa í sig á málsverði í Friðarhúsi. Vænti þess að sjá alla góða menn á báðum stöðum.
Þriðji maðurinn
Ólympíuleikarnir nálgast og í ár eru fjörutíu ár frá frægustu pólitísku aðgerð sem þeim tengist – verðlaunaafhendingunni eftir 200 metra hlaupið, þar sem tveir bandarískir keppendur steyttu hnefann til að mótmæla kynþáttakúgun gegn svörtum í Bandaríkjunum. Ég fór að lesa mér til um þetta atvik og í ljós kom að margt af því sem ég …
Lestin til Keflavíkur
Þegar hugmyndir um lestarsamgöngur milli Reykjavíkur og Keflavíkur voru ræddar fyrir nokkrum árum urðu sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum óðir. Þeir höfðu ekki heyrt jafnvitlausa hugmynd og sögðu að enginn vildi fara í lest á milli. Það voru fyrirsjáanleg viðbrögð – því á sama tíma voru þeir að berjast fyrir því að ríkið tvöfaldaði Reykjanesbrautina og þess …
Asíuboltinn
Eitt af mínum sérviskulegustu áhugamálum er að fylgjast með forkeppni HM í knattspyrnu í veikari heimsálfunum. Á sínum tíma skrifaði ég langhunda á vefritið Múrinn um Afríku- og Asíukeppnina, flestum meðritstjórnarfulltrúum til skelfingar. Á dag var umferð í Asíukeppninni og þar eru spennandi hlutir að gerast. Að þessu sinni komast fjögur lið beint frá Asíu …
Íraksstríðið í 3.500 orðum
Það er ekki oft sem maður leggur í 3.500 orða greinar um pólitískt málefni – hvað þá 3.500 orða grein sem er morandi í tenglum á greinar sem hver um sig er væn að vöxtum. Brendan O´Neill, ritstjóri Spiked skrifar slíkan hlemm í tengslum við fimm ára afmæli íraksstríðsins. Á greininni rekur hann sögu íraksstríðsins …