Þegar ég var við nám í Edinborg, bjó ég steinsnar frá aðalmosku múslima í borginni (gott ef ekki þeirri einu). Ég gekk framhjá henni nokkrum sinnum á dag, t.a.m. á leiðinni á bókasafnið og í kennslustundir.Aldrei varð ég fyrir neinni truflun út af þessu… og þó – besti kebab-staður hverfisins lokaði í hádeginu á föstudögum vegna bænahalds.Ég hef greinilega verið gríðarlega heppinn. Ef marka má liðið sem hringir inn símatíma útvarpstöðvanna er það nefnilega helvíti á jörðu að búa nálægt mosku – með sífelldum truflunum, áreiti og hávaða.Â