Á síðasta fundi miðnefndar SHA var rætt um kynningarmál. Miðnefndarmenn reyndust hafa tröllatrú á netinu fyrir hvers kyns auglýsingar og kynningar – þar á meðal Facebook, sem ég hef aldrei viljað koma nálægt. Á kjölfarið var formaðurinn skikkaður til að stofna Facebook-síðu, sem ég varð vitaskuld að hlýða. Fyrir vikið er ég kominn á Facebook. …
Monthly Archives: nóvember 2008
Með grátt í vöngum
Það kemur sú stund í lífi hvers manns að hann verður að viðurkenna að hann er farinn að grána allverulega í vöngum. Á mínu tilviki er það líklega birtingin á þessari mynd, með fyrsta Smugu-pistlinum mínum…
Kvöldið
Þessu má nú ekki missa af: Minnt er á fjáröflunarmálsverð og fullveldisfögnuð SHA í Friðarhúsi í kvöld, föstudagskvöld.  Matseðillinn verður venju fremur glæsilegur, enda um hálfgert jólahlaðborð SHA að ræða.  Guðrún Bóasdóttir (Systa) eldar. Matseðillinn er á þessa leið:  – Heimalöguð sænsk jólaskinka með karöflusalti, gulrótar appelsínusalati og sinnepssósu  – Heimagerð …
Skynsamleg breyting
Þetta er skynsamleg tilraun hjá borgaryfirvöldum og ætti að geta losað okkur við einn flöskuhálsinn í umferðarkerfinu. Spurning hvort e-ð svipað mætti gera á Miklubrautar/Lönguhlíðar-gatnamótunum?
Um dauðans óvissa tíma
Annar af tveimur gullfiskum barnsins dó í kvöld. Útför auglýst síðar. # # # # # # # # # # # # # Ferlega er það eitthvað lélegt að hefja herferð fyrir því háskólinn manns eyði grein/ræðu sem maður er ósammála út af heimasíðu sinni. Á þetta ekki að heita menntastofnun? Datt engum í …
Kristinn H.
Alltaf finnst mér jafnskrítið þegar sama fólk og talar fyrir auknum persónukosningum og hversu slæmt sé að binda sig á klafa stjórnmálaflokka – hneykslast síðan á Kristni H. Gunnarssyni og hristir hausinn yfir því hvað hann rekist illa í flokki. Kristinn H. Gunnarsson er ekki við allra skap, en þó óumdeilanlega einn af aðsópsmestu stjórnmálamönnum …
Hneit þar
Urr… Luton tapaði fyrir Brentford í kvöld. Keith Keane með rautt spjald. Og í fótboltanum í KR-heimilinu sló ég úlnliðnum fast utan í andstæðing og er helaumur. Verð það væntanlega næstu daga. Djöfuls djöfull.
Góður dagur
Það stefnir í góðan dag. Á dag munu Grænlendingar nefnilega að öllum líkindum samþykkja aukna sjálfstjórn sér til handa og stíga stórt skref í átt til pólitísks sjálfstæðis. Því hljóta allir góðir menn að fagna. Ég hef margoft áður bent á hversu slök frammistaða það er hjá okkur Íslendingum að Háskóli Íslands skuli ekki bjóða …
Hver skvílaði?
Haukur mótmælandi var böstaður af löggunni þegar hann var staddur í vísindaferð háskólastúdenta á vegum Samfylkingarinnar niðrí Alþingi. Þá vaknar spurningin: hver skvílaði? Ég giska á ígúst Ólaf… Önnur möguleg skýring er sú að íslenska leyniþjónustan sé ennþá að hlera símann hjá írna Páli – sem hafi verið að hringja heim í frúnna að melda …
Brúnó
Efni: vísindasögunördismi Á nýjasta hefti Sögunnar allrar er greinarkorn um „píslarvott vísindanna“, Giordano Bruno, sem brenndur var á báli árið 1600. Greinin er ekki merkt höfundi, svo erfitt er að segja til um hvort hún sé þýdd úr erlenda móðurblaðinu eða hvort skrifin séu eftir Illuga Jökulsson eða einhvern starfsmanna hans. Söguskoðunin er ekki ný …