Uppgötvaði þegar ég var að hlusta á Talstöðina í bílnum um hádegisbilið að Silfur Egils er byrjað aftur. Man ekki eftir að hafa séð neinar auglýsingar um þáttinn og hafði heyrt slúðursögur um að hann yrði ekki á dagskrá í vetur.
Eftir maraþonumræður um Baugs-mál frá ýmsum hliðum, lauk þættinum á spjalli um þýska pólitík. Þangað voru mættir Jón Óskar Sólnes og Atli Heimir Sveinsson. Atli Heimir er betri í tónsmíðunum en fréttaskýringum. Það var hreinlega pínlegt að hlusta á hann í þættinum, þar sem hann virtist ekkert þekkja til málanna og hafði ekki annað fram að færa en sleggjudóma og blammeringar um íslenska og þýska pólitík. Greinilegt var að Jón Óskar var orðinn harla pirraður út í félagann í útsendingunni, enda ekki mættur á svæðið til að hlusta á önugt tónskáld stimpla hina og þessa sem labbakúta eða lýðskrumara.
Þegar talið berst að nýja Vinstriflokknum þýska, sem fékk um 9% atkvæða í kosningunum, er algengast að fréttaskýrendur slái því föstu að það sé óstjórntækur flokkur – rekinn af gömlum kommúnistum og Óskari Lafontaine – sem sé snar. Eins og Egill Helgason rifjaði reyndar upp á síðunni sinni nýverið, þá er ekki langt síðan Lafontaine þótti mjög svalur pólitíkus í kreðsum „nútímalegra jafnaðarmanna“ – sem töldu hann góða fyrirmynd.
Hvað hinn leiðtoga Vinstriflokksins, Gregor Gysi, varðar – þá heyrði maður fyrst minnst á hann seint á níunda áratugnum. Þá kallaði Morgunblaðið hann „Umbótasinna“. Hann var sagður aðdáandi Gorbatsjovs og mikið var gert úr störfum hans sem lögmaður ýmissra kunnra andófsmanna í Austur-Þýskalandi. Þar á meðal voru félagar í „Nýjum vettvangi“ – sem margir héldu að yrði einhvers konar „Samstaða“ þeirra Austur-Þjóðverja, en varð ekki annað en lítil neðanmálsgrein í stjórnmálasögu 20. aldar. Skyldi hinn austur-þýski „Nýi vettvangur“ hafa verið fyrirmyndin að nafni hins misheppnaða „Nýs vettvangs“ sem boðinn var fram í borgarstjórnarkosningunum 1990 hér heima? Það væri gaman að komast að því…
Gregor Gysi þótti sem sagt umbótasinni á síðum Moggans fyrir rúmum fimmtán árum, en er í dag talinn leifar frá valdatíma kommúnista. Ætli þetta segi ekki ansi margt um það hversu lítið er oft að marka stimpla á borð við „harðlínumaður“, „umbótasinni“ og önnur álíka hugtök sem skellt er á menn og hreyfingar í erlendum fréttum. Hversu margir umbótasinnar dagsins í dag eiga eftir að verða harðlínu- eða afturhaldssinnar morgundagsins – og öfugt?
# # # # # # # # # # # # #
Á gær var forval Vinstri grænna í Reykjavík. Sem formaður kjörstjórnar þurfti ég að tilkynna úrslit. Það er ekki skemmtilegt hlutverk, því þótt vissulega sigri einhverjir og gleðjist – þá tekur maður frekar eftir vonbrigðum hinna. Það er leiðinlegt að sjá félaga sína niðurdregna eftir að hafa fengið lakari útkomu en vonir stóðu til. Held samt að listinn sé nokkuð öflugur. Ég yrði ekki hissa ef Svandís Svavarsdóttir verður orðin einn af sterkustu leiðtogum vinstrimanna innan nokkurra ára.
# # # # # # # # # # # # #
Luton vann eina ferðina enn um helgina, að þessu sinni Cardiff á útivelli. Erum í þriðja sæti, skammt á eftir Reading. Magnað!