Davíð Þór Jónsson kallaði Kaninkuna um daginn „Vestmannaeyjar Internetsins“ – í þeirri merkingu væntanlega að alla langar til Eyja, en komast ekki því það er alltaf ófært.
Ef þessi líking er rétt er Palli Hilmars (sem er ekki hættur að reykja) væntanlega „írni Johnsen Internetsins“ – í þeirri merkingu að írni ætlar að grafa göng til Eyja svo þangað verði fært í öllum veðrum.
Palli yfirtölvugúrú hefur boðað flutninga Kaninkunnar til útlandsins fyrir jól. Það þýðir mikla röskun á vefnum meðan á því stendur – en að því loknu verður víst allt í þessu fína, engar bilanir og eilíf hamingja.
Lengi lifi Kaninka! Megi Mogga-bloggið farast!