Örlæti auðmanna er talsvert í fréttum um þessar mundir. Þegar hinn eða þessi skrilljarðamæringurinn gefur rausnalega til einhvers þjóðþrifaverkefnisins er oft látið eins og um einstæða atburði í Íslandssögunni sé að ræða.
En hver ætli sé verðmætasta gjöf af þessu tagi í sögulegu samhengi? Sumar af gjöfum auðmanna á miðöldum til klaustra voru svo stórar að nær ómögulegt er að átta sig á stærð þeirra framreiknað til nútímaverðgildis. Ef við einskorðum okkur við tuttugustu öldina myndi ég hins vegar skjóta á gjöf Sigurðar Jónassonar til íslenska ríkisins – þegar hann gaf Bessastaði og Geysi í Haukadal.
Hvaða verðmiða ætli fasteignasali myndi skella á Bessastaði í dag?