Fyrir 4-5 dögum dúkkaði jólatréshræ upp í götunni. Það hefur svo síðustu sólarhringana verið að hrekjast eftir vindátt fram og aftur Skarphéðinsgötuna og niður Mánagötu.
Þetta kallar maður framtaksemi!
Einhver nágranninn hefur ákveðið að taka jólahreingerninguna strax í byrjun desember… og byrjað á að losa sig við tréð frá því í fyrra.