Allt í volli á Mánagötu. Við Steinunn höfum legið í bælinu með andstyggilegt kvef í allan dag. Það þarf mikið að breytast í nótt til að ég komist í vinnuna á morgun.
Sendum grísinn í sund með ömmu sinni og afa. Það féll í kramið, enda barnið líklega sárfegið að yfirgefa pestarbælið.
Um fjögurleytið dröslaðist ég innan úr rúmi og fram í stofu, þar sem ég sá Framara taka Hauka í nefið í deildarbikarnum. Viggó er að gera virkilega góða hluti með þetta Framlið. Það kemur þægilega á óvart.
Jafnframt lá ég á netinu og fylgdist með framvindu mála hjá Luton og Lincoln. Chris Martin (lánsmaður frá Norwich) skoraði tvisvar og hjassinn geðþekki, Ian Roper, skoraði annan leikinn í röð. Lincoln minnkaði muninn í 3:2 undir lokin, en þrjú dýrmæt stig í höfn.
Núna er mótið hálfnað, 23 umferðir búnar af 46. Luton er komið í mínus eitt stig (byrjuðum með þrjátíu í mínus). Það er undir settu marki – en ekki þó svo ýkja fjarri því sem þarf til að halda sér uppi.
Bournemouth er með sjö stig – átta stigum meira en við. Þeir byrjuðu með sautján stig í mínus. Það þýðir að okkur hefur bara tekist að saxa á forskot þeirra um fimm stig af þrettán. Hins vegar er allt í steik utanvallar hjá Bournemouth og ekki útilokað að þeir lendi í frekari refsingum vegna fjármálaóreiðu.
Grimsby er með fjórtán stig. Við höfum því minnkað forskot þeirra um helming. Stjóraskipti virðast ekki hafa gagnast Grimsby-mönnum, en Mike gamli Newell er við stjórnvölinn þar núna.
Barnet skipti um stjóra nú um helgina. Þeir unnu Bournemouth í dag og eru komnir í nítján stig. Accrington Stanley sigraði Grimsby og komst í 22 stig. Chester er með 23. Öll þessi lið sigla því tiltölulega lygnan sjó, en geta dregist oní fallbaráttuna á skömmum tíma.
Næsti leikur er úti gegn Chester, laugardaginn þriðja janúar. Þá verður líka búið að opna félagaskiptagluggann, sem mun hafa í för með sér talsverðar breytingar á liðskipan margra liða sem treysta á lánsmenn úr efri deildunum. T.d. bíða Luton-menn spenntir eftir að sjá hvort Leicester fær framlengt lánið á markverðinum sínum frá Liverpool. Ef það gengur eftir, þá eru meiri líkur á að Leicester leyfi okkur að halda Conrad Logan út tímabilið.
Af utandeildarkeppninni er það markverðast að Burton Albion er langefst á toppnum og mun væntanlega leika í deildarkeppninni á næsta ári í fyrsta sinn í sögunni. Það er ekki hvað síst áhugavert vegna þess að Burton er með ungan stjóra, sem þó hefur verið við stjórnvölinn hjá liðinu í mörg ár – Nigel Clough! Það skyldi þó aldrei fara svo að Clough yngri taki við Nottingham Forest innan nokkurra ára?