Gula ógeðið… …skín inn um gluggann á skrifstofunni minni og gerir mér ífið leitt. Væri hægt að banna gott veður á Íslandi nema eftir vinnu og um helgar? – Annars grunar mig að þetta sé fyrst og fremst gluggaveður. * * * Úrslitin í gær voru hræðileg! Ef ekki hefði komið fyrir Birki Kristinsson, þá …
Monthly Archives: maí 2002
Rás tvö á áðan… Stuna!
Rás tvö á áðan… Stuna! Á gær vann ég í erindi mínu á Söguþinginu lengst fram eftir kvöldi og var því pínulítið lemstraður í morgun. Það var því sérstaklega gleðilegt að uppgötva í bílnum á leiðinni í vinnuna að Viðar (sem ég fæst aldrei til að kalla „Köttinn“), Óli Njáll og Sigga bleika væru í …
Dagbók kosningadagsins… Vá, það er
Dagbók kosningadagsins… Vá, það er gott að svona dagar komi ekki nema á nokkurra ára fresti. Kosningadagurinn hófst á því að við Valur húsfélagsformaður renndum við í Hagaskólanum til að kjósa. Því næst var stefnan tekin til Grindavíkur. Á leiðinni furðuðum við okkur á því hvað veðrið væri gott – hvort að það gæti virkilega …
Metúsalem og Pikkarónarnir… Ekki nennti
Metúsalem og Pikkarónarnir… Ekki nennti ég að horfa á kosningaþátt Egils Helgasonar í gær, enda fórum við Steinunn í kaffiboð til Aðalsteins og Salnýjar í staðinn. Maður varð nú pínulítið skúffaður að hafa misst af öllu fjörinu eftir að forsíða Fréttablaðsins upplýsti að Metúsalem og ístþór Magnússon hafi reynt að storma inn í stúdíóið til …
Pirringur… Jæja, þá er síðdegispirringurinn
Pirringur… Jæja, þá er síðdegispirringurinn kominn yfir mann. Ég hef litlu komið í verk eftir hádegi, ef undan eru skilin 2-3 símtöl varðandi netmál fyrirtækisins og safnsins – sem eru alltaf sama hassið. Það er ekki til að bæta skapið að hlusta á Útvarp Sögu þegar maður er í svona skapi. Þar gasprar Hallgrímur Thorsteinsson …
Continue reading „Pirringur… Jæja, þá er síðdegispirringurinn“
Djöfullinn snýr aftur… Hahaha… alveg
Djöfullinn snýr aftur… Hahaha… alveg hefði ég mátt segja mer það sjálfur að það væri minn gamli bekkjarbróðir og sessunautur úr menntó, Pétur Rúnar Guðnason, sem stæði fyrir síðunni www.xxxd.is – Pétur Rúnar, sem var yfirleitt kallaður „Pétur djöfull“ eða bara „Djöfullinn“ er höfuðsnilingur og erkitölvunjörður. Þetta tiltæki virðist hins vegar hafa runnið gersamlega á …
Okkar á milli í hita
Okkar á milli í hita og þunga dagsins Jæja, þá er frábær helgi að baki. Ég held að ég hafi ekki komið svona úthvíldur til vinnu í vikubyrjun í óratíma – og það þrátt fyrir að framleidd hafi verið nærri 1.500 barmmerki um helgina. Á laugardagskvöldið var R-listinn með hátíð á nokkrum börum á Ingólfsstrætinu, …
Hitabylgja í Reykjavík… Más og
Hitabylgja í Reykjavík… Más og blás. Það er hræðilega heitt núna í Reykjavík. Varla að manni standi á sama í ljósi fregnanna frá Indlandi um að hundruðir manna hafi farist úr hita – þótt sennilega sé hitinn þar aðeins fleiri gráður. Við Steinunn skriðum fram úr upp úr hádegi og rukum beint niður á R-lista …
Antíklímax? Finnst mönnum það ekki
Antíklímax? Finnst mönnum það ekki draga dálítið úr ljómanum yfir þessu fjallapríli Haraldar Arnar Ólafssonar að sama dag og hannklöngraðist upp á tindinn, skuli 63 ára gömul japönsk kona hafa gert það sama? Skyldi forsætisráðherra Japan hafa vakað í heila nótt í einhverri sportverslun af þessu tilefni?
Heimilisfriðnum borgið… Hjúkk! Góður lesandi
Heimilisfriðnum borgið… Hjúkk! Góður lesandi ákvað að benda mér á það vegna síðustu færslu, að leikurinn gegn Kebblavík sé klukkan 17 en ekki kl. 19. Það þýðir að ég kemst á völlinn OG get mætt í afganga hjá tengdó um kl. 20. – Jæja, þá ætti ég að losna við mestu skammirnar og er ekki …
Continue reading „Heimilisfriðnum borgið… Hjúkk! Góður lesandi“