Það þykir kannski ekki lengur fínt að blogga um HM í handbolta eftir tapið í gær, en ég fór að hugsa – hvað er orðið um Kúbu í handboltanum? Þeir voru langbesta Ameríkuþjóðin og enn í dag eru öflugir leikmenn af kúbönsku bergi brotnir í sterkum Evrópuliðum. Samkvæmt Wikipediu kepptu átta þjóðir í forkeppni HM …
Monthly Archives: janúar 2007
Skólanefndarfundur
Mætti á skólanefndarfund í MR í gær. Ríkið hefur skipað nýja fulltrúa, en við frá borginni fáum líklega að sitja í einhverja mánuði í viðbót. Ég á nú ekki sérstaklega von á að verða látinn sitja áfram fyrir hönd minnihlutans. Á lok fundar var boðið upp á skoðunarferð um þá hluta skólans sem búið er …
Helvítis læmingjar
Urr! Þetta áttu að vera kosningarnar þegar Framsóknarflokkurinn yrði nálega þurrkaður út – eða honum greitt slíkt högg að hann stæði ekki upp aftur. Líkurnar á því fara minnkandi. Ekki vegna þess að Framsókn sé eitthvað minna glötuð en fyrr, heldur vegna þess að flokkarnir sem eru með okkur í stjórnarandstöðu eru drasl. Hvaða helvítis …
Gúgglaðu það bara
Á Sunnudagsmogganum er grein um Vísindakirkjuna. Frekar snubbótt reyndar, en inniheldur þó 1-2 áhugaverða punkta. Blaðamaður Morgunblaðsins endar greinina á að vísa í heimildir (sem eru fín vinnubrögð). Heimildirnar reynast vera 5-6 vefsíður, sem vísað er í með ansi almennum hætti (t.d. www.visindavefur.hi.is og www.deiglan.com). Besta heimildin er þó www.google.com – það kemur ekki einu …
Játningar táningsfemínista
Sá um daginn auglýsingu. Það er verið að bjóða gamla árganga af Veru til sölu. Ég þarf ekki að kaupa. Öll gömlu blöðin eru til heima hjá gömlu í Frostaskjólinu og sjálfur var ég áskrifandi af síðustu árgöngunum. Ég lúslas Veru sem pjakkur. írin þegar blaðið var gott, var það helv. gott. En sum árin …
SÍF-geymslan
Á Morgunblaðinu er sagt frá því að eitthvert byggingarfélag vilji rífa SíF-geymslurnar vestur í bæ og reisa 150 íbúðir, þar á meðal tólf hæða turn. Nágrannarnir eru skiljanlega foxillir. Ætli hér sé ekki á ferðinni sú gamalkunna brella í byggingabransanum að kynna skipulagshugmynd upp á 3-4 hæðum meira en ætlunin er að reisa. Svo dregur …
Stéttarfélagið
Á morgun átti ég erindi á skrifstofu Starfsmannafélags Reykjavíkur. Skrifstofan er í BSRB-húsinu á Grettisgötu, en þaðan á ég margar minningar frá því að afi var framkvæmdastjóri. Þegar ég var sendur í pössun í vinnuna til afa fékk ég að teikna á bréfsefni með áprentuðu BSRB-merki, hamra á ritvél og raða blöðum og tímaritum. Á …
Öldungaframboð
Einhvern veginn finnst manni að sérframboð eldri borgara (og e.t.v. öryrkja líka) hafi verið boðað fyrir hverjar einustu þingkosningar. Á flest skiptin hefur þungavigtarfólk úr þessum þjóðfélagshópum farið fyrir slíkum undirbúningshópum – en ekkert orðið úr framboði, enda markmiðið frekar að hrella stjórnvöld en að láta á þetta reyna. Núna virðist líklegra að framboð aldraðra …
Hlífin
Ökklahlífin sem Ragnar lánaði mér virðist hafa gert sitt gagn. Ökklinn er amk furðulítið aumur. Ekki skil ég þó í mönnum sem nenna að spila svo árum skiptir vafðir inn í svona helvíti. Var í marki allan tímann, aldrei þessu vant. Varði 2-3 fasta bolta með höfðinu – sem í bland við kvefið er búið …
22. janúar
Eitthvað heyrði ég talað um það í útvarpinu á leið til vinnu að 22. janúar væri versti dagur ársins smkv. einhverri rannsókn sem fram hefði farið í útlandinu. Ekki get ég skrifað upp á það, í það minnsta hefur þetta verið gríðarlega afkastamikill dagur í vinnunni, þótt ekki sé hann nema rétt hálfnaður. Á morgun …