Stöngin inn

Einu sinni áttum við Framarar stuðningsmannalag sem nefndist „Stöngin inn!“ – það var rangnefni á leiknum í­ dag. „Stöngin út!“ hefði verið nær lagi. Ekki hef ég hugmynd um hversu oft Framararnir negldu í­ stöngina eða slánna á KA-markinu. Ekki þar fyrir að úrslitin voru sanngjörn. Akureyringarnir voru einfaldlega betri í­ dag. Fúlt. * * …

Magnað

Alveg var keppni gærkvöldsins mögnuð. MH var alveg við það að vinna MR, en klikkaði á smáatriði í­ sí­ðustu spurningu og því­ fór sem fór. Það sem áhorfendur heima í­ stofu sáu ekki, var heljarmikið uppistand á tökustað þar sem upptaka var stoppuð til að athuga hvort ekki væri 100% rétt farið með. Sú spurning …

Millistjórnun

Á dag er ég búinn að vera hinn fullkomni millistjórnandi. Morguninn hefur allur farið í­ að sitja fundi, ræða tillögur velta upp hlutum sem hægt væri að gera – en alltaf er svo klykkt út með: „…og svo þurfum við bara að sannfæra yfirmanninn.“ Fundir eru uppfinning andskotans. Engin verkefni klárast á fundum. Á besta …

Hnignun öskudagsins

Öskudagurinn er að fara í­ hundana – þökk sé helví­ts markaðsöflunum. Á dag gengur öskudagurinn út á að Leikbær og fleiri leikfangaverslanir selja börnum spædermanbúninga á 5.000 kall stykkið. Svo ganga þau búð úr búð og gaula til að fá sælgæti – það mun vera einhver norðlenskur siður sem vondir menn fluttu til Reykjaví­kur. Einhverra …

Sjálfsmorð á netinu

Það er hægt að nota netið á annan hátt en til að skoða klám, spila tölvuleiki og svindla fé út úr hrekkleysingjum. Netið opnar lí­ka möguleika fyrir örvæntingarfullt fólk sem hyggur á óyndisúrræði. Spjallsí­ða stuðningsmannaklúbbs Luton Town var í­ gærkvöld, nótt og í­ morgun, undirlagt af umræðum um sjálfsmorðshótun 24 ára stráks sem virðist hafa …

Gjörningalistamaðurinn Stefán

Besti og frægasti bloggarinn er alvarlega að í­huga að snúa bakinu við safnvörslu, sagnfræði og spurninganördisma og gerast artý gjörningalistamaður. Þetta er ekki vegna hinnar alræmdu miðaldrakrí­su sem skellur á karlmönnum þegar 29 ára afmælið nálgast, heldur fékk ég opinberun í­ gær. Skyndilega gerði ég mér í­ hugarlund frábæran gjörning, sem væri í­ senn listrænn, …

Urr…

Var búinn að semja langa og flotta færslu um lagið Sunshine on Leith, sem Þórunn Hrefna bloggaði um. Þar slá ég á viðkvæma strengi og rifjaði upp dvöl mí­na í­ Leith og sagði frá þeim stað. Helv. uppfærslukerfið fraus og færslan að eilí­fu glötuð. Kannski blogg-guðirnir séu að reyna að segja mér að blogga ekki …

Allt í skilum

Jæja, Kaninkuklanið er aftur komið á netið og þar með talin þessi sí­ða. Palli hefur staðið í­ stappi við bandarí­sku hýsingarþjónustuna sem taldi að við værum orðin alltof plássfrek, en færði okkur svo á nýjan hýsil og þetta ætti því­ að fá að standa uppi óáreitt í­ bili. Þetta leiddi til þess að keppnislið gærdagsins …

Át

Það stefnir í­ að þessa dags verði minnst sem matar-miðvikudagsins mikla. Byrjaði daginn á að hakka í­ mig afganga frá gærkvöldinu í­ morgunmat. Þetta var kannski harðneskjulegt gagnvart vinnufélögum mí­num, því­ um var að ræða pasta með vænum slurki af hví­tlauk. Hádegisverðurinn var lí­ka rausnarlegur. Þurfti að hitta nafnana Kolbein Proppé og Bjarnason á fundi. …