Þvert á betri vitund keypti ég mér harðfisksbréf í 11-11 í gær. Þessir næfurþunnu pakkar innihalda sjaldnast góðan harðfisk. Hvers vegna drullast ég ekki oftar í Kolaportið til að kaupa almennilegan harðfisk – eða það sem betra væri, hvers vegna heimsækir konan sem selur pabba reglulega harðfisk ekki Norðurmýrina líka? Hver segir að bara Vesturbæingar …
Monthly Archives: júní 2004
Benno
Einhverju sinni mæltist bloggfressið til þess að einingin Billy yrði tekin upp í SI-einingakerfið, enda IKEA orðin þekkt, alþjóðleg stærð. Þetta er frábær hugmynd og augljóslega myndi hvert Billy skiptast upp í 10 Benno. Keyptum okkur einmitt Benno-geisladiskastand um helgina, til viðbótar við þann sem fyrir var í stofunni. Þörfin var brýn, enda geisladiskahulstrin eins …
Lán í óláni
Fór með dæhatstjú-dósina hennar Steinunnar í skoðun. Fékk endurskoðun á hana. ístæðurnar voru assgoti ómerkilegar. Ónýt pera á stöðuljósi og lúið bílbelti. Kommon! Menn hafa sloppið í gegn með miklu verri hluti… Á hitt ber að líta að við áttum allt eins von á miklu alvarlegri athugasemdum og það getur fjandakornið ekki þýtt mikil útgjöld …
EM og Volvo
Ef ég væri átta ára og hefði horft á leikinn í gær, þá myndi ég sko vilja vera markvörður. Jújú, það er svalt að verja víti í vítakeppni og fara langleiðina með að tryggja sínu liði sigurinn. Það er ofursvalt að taka sjálfur úrslitavítið. En það langsvalasta var að hann skyldi hafa farið úr hönskunum …
Bús
Annasamur dagur í vinnunni. Byrjaði á að bruna með Bláa drauminn í Kópavoginn, þar sem snillingarnir í Bílhúsinu – besta bifreiðaverkstæði höfuðborgarsvæðisins – ætla að reyna að lappa upp á ýmislegt smálegt. Hef mestar áhyggjur af bílstjórasætinu, sem er brotið. Líklega fæ ég ekki skoðun á bílinn með ónýtt bílstjórasæti. Fyrsta verk í vinnunni var …
Brenni
Mæli með góðum nostalgíulista Þórdísar. Henni finnst skrítið að muna þessa hluti tæplega fertug. Sjálfur er ég rétt innan við þrítugt og man eftir 90% af þessu. Á listann vantar þó margt. Ekki er rætt um verslunina Víði, en sérmerktir plastpokar hennar voru ótrúlega endingargóðir og jafnvel til ennþá á einhverjum heimilum. RKí-skyndihappdrættið var til …
Kvikasilfur
Kvikasilfur er skrýtið efni. Fyrr í dag helltu tveir vaskir verkamenn Orkuveitunnar slatta af kvikasilfri á gólfið á vinnustaðnum mínum. Þar varð uppi fótur og fit. Núna veit ég að þegar kvikasilfur fer í gólfið, þá er best að ná því upp með því að kaupa brennistein og hella yfir efnið. Brennisteinninn og kvikasilfrið ganga …
Lissabon
Einu sinni var aldrei talað öðru vísi um höfuðborg Kína en sem Peking. Svo uppgötvaði einhver að það væri hálfgerð enskusletta og að réttara væri að segja Bejing. Bejing-nafnið hefur upp frá því verið að taka yfir hægt og bítandi. Sömu sögu er að segja um ýmis önnur erlend örnefni. Það þykir ekki par fínt …
Meistarinn
Pabbi útskrifaðist sem meistari í umhverfisfræðum frá Háskólanum í fyrradag. Hörkupartý í Frostaskjólinu og svo voru afgöngunum gerð skil á sunnudag. Karlinn fékk 23 eða 24 flöskur af hinu fjölbreytilegasta áfengi, þ.á.m. fágætan Ardbeg frá okkur Steinunni, Guðrúnu og Elvari. Frumlegasta gjöfinn var þó stór pottur af kræklingum, sem étinn var upp til agna í …
Jess – Luton í FYRSTU DEILD!!!
Gleðifréttir! LUTON ER KOMIí Á FYRSTU DEILD! Slæmu fréttirnar. – Skýringin er sú að nú hefur breska knattspyrnusambandið ákveðið að breyta nafni fyrstu deildar (sem í raun er önnur deild) í „The Championship“ og gamla önnur deildin (sem í raun er þriðja deild) mun þá heita fyrsta deild og gamla þriðja deildin (sem í raun …