Belgía var frábær. Brúðkaupsveislan hjá Óla og Laurence var frábær. Athöfnin var svo sem fróðleg líka. Mér reiknast til að þetta sé þriðja kirkjubrúðkaupið sem ég hef verið viðstaddur á ævinni, yfirleitt mæti ég í veisluna en sleppi kirkjunni. Við Steinunn létum þó eiga sig að þiggja oblátu hjá prestinum – ætli það hefði ekki …
Monthly Archives: ágúst 2006
Stefán & Steinunn chez les Belges
Jæja, þá styttist í brottför til Belgíu. Óli Jó og Laurence eru að fara að gifta sig. Það er mikið gleðiefni. Ólína gistir hjá ömmu sinni og afa. Þau munu ekki eiga sjö dagana sæla (fimm dagana í þessu tilviki) – því grísinn klifrar upp um alla veggi. Á morgun klöngraðist hún upp á eldavélina …
Sögufölsun HHG?
Á framhaldi af stjórnmálagetraun gærdagsins, þar sem spurt var um Sigrúnu Þorsteinsdóttur – varaformannsframbjóðanda í Sjálfstæðisflokknum 1983 – skrifar Guðmundur Rúnar Svansson eftirfarandi skeyti í athugasemdakerfið: Þá er ég með spurningu til írmanns: Þannig háttar til að ég hef á skrifstofunni hjá mér sögu Sjálfstæðisflokksins sem Hr. Hólmsteinn skrifaði á einhverju merkisárinu í viðhafnarstíl og …
Bandaríski herinn í Írak
Rakst á stórmerkilega skoðanakönnun meðal bandarískra hermanna í írak. Það er sláandi að sjá að 85% þeirra telja að stríðið í írak sé að miklu leyti til að hefna fyrir þátt íraka í hryðjuverkunum 11. september og álíka fjöldi að íraksstjórn hafi sérstaklega stutt við bakið á Al-kaída. # # # # # # # …
Rétt svar komið fram
Ekki vafðist þetta fyrir írmanni Jakobssyni. Auðvitað var hér spurt um Sigrúnu Þorsteinsdóttur forsetaframbjóðanda. Eftir viðskilnaðinn við Sjálfstæðisflokkinn, gekk hún til liðs við Flokk mannsins og var frambjóðandi hans í forsetakosningunum 1988. Framboð hennar varð geysióvinsælt, þar sem fullt af fólki taldi það móðgun við sitjandi forseta að fá mótframboð – og kvartað var yfir …
Stjórnmálagetraun – 3.vísbending
Stjórnmálamaðurinn sem um er spurt sagðist hafa orðið fyrir gríðarlegum áhrifum af lestri bókarinnar Forseti lýðveldisins. Bókin dró upp ófagra mynd af stefnu Bandaríkjastjórnar í málefnum Rómönsku Ameríku. Ferill stjórnmálamannsins sem um er spurt náði hámarki í kosningum einum á níunda áratugnum. Eftir það má segja að stjórnmálamaðurinn hafi nánast horfið af hinu pólitíska leiksviði. …
Stjórnmálagetraun – 2.vísbending
Flokkurinn, sem stjórnmálamaðurinn sem um er spurt yfirgaf, var Sjálfstæðisflokkurinn. Lét stjórnmálamaðurinn þess getið að Sjálfstæðisflokkurinn væri breyttur frá þeim tímum þegar Ólafur Thors og Bjarni Ben stýrðu honum. Þess í stað réði lítil klíka lögum og lofum. Á nýja flokknum tók stjórnmálamaður þessi við embætti gjaldkera.
Stjórnmálagetraun – 1.vísbending
Spurt er um íslenskan stjórnmálamann. Stjórnmálamaðurinn bauð sig fram til embættis varaformanns en tapaði. Skömmu síðar gekk hann úr flokknum og til liðs við annan stjórnmálaflokk með þeim orðum að dvölin á gamla staðnum hefði verið „mannskemmandi“. Hver er stjórnmálamaðurinn?
70%
Skjár 1 auglýsir að Rokkstjörnuþátturinn sé vinsælasti erlendi þáttur í íslensku sjónvarpi frá upphafi – 70% (uppsafnað með endursýningum væntanlega). Þetta er augljóslega rangt. Meðan RÚV var eitt á markaðnum hafa margir þættir náð þessum árangri. Mig rámar í að hafa séð gamla frétt frá 1982-3 þar sem Löður var í 75% og Tommi og …
Varaþingmaður
Það fer alltaf í taugarnar á mér þegar titillinn „varaþingmaður“ er notaður um fólk sem aldrei hefur sest á þing. Á mínum huga er það hugsunarvilla að kalla þá sem sitja í næstu sætum framboðslista á eftir kjörnum þingmönnum sjálfkrafa „varaþingmenn“. Það er ekki staða í sjálfu sér. Fólk verður fyrst varaþingmenn þegar það er …