Famelían er farin í sumarfrí til Danmerkur. Hér verður ekkert skrifað fyrr en í júlí. Sjáumst þá. Reynið að þrauka.
– Og til að hryggja blogglesandi innbrotsþjófa, þá er búið að lána íbúðina þessar tvær vikur svo kofinn verður ekki mannlaus…
Famelían er farin í sumarfrí til Danmerkur. Hér verður ekkert skrifað fyrr en í júlí. Sjáumst þá. Reynið að þrauka.
– Og til að hryggja blogglesandi innbrotsþjófa, þá er búið að lána íbúðina þessar tvær vikur svo kofinn verður ekki mannlaus…
Asíukeppnin skýrðist allrækilega í gær.
1. riðill: ístralir eru komnir áfram. írak og Katar eru jöfn að stigum og mætast á „heimavelli“ íraka í Dubai. Reikna með írak áfram.
2. riðill: Japan og Bahrain komin áfram.
3. riðill: Norður- og Suður-Kórea komin áfram.
4. riðill: Úzbekistan og Sádi Arabía komin áfram.
5. riðill: íran komið áfram. Sýrlendingar þurfa að vinna Sameinuðu arabafurstadæmin á útivelli til að skjótast framúr þeim.
Milliriðlarnir klárast eftir viku. Á kjölfarið verður svo dregið í lokariðlana. Ég spái tveimur nýjum fulltrúum Asíu í lokakeppnina.
írakar gerðu sér lítið fyrir og unnu Kínverja í Tianjin. Þar með er ljóst að Kína vermir botnsætið í fyrsta riðli, sem hljóta að vera gríðarleg vonbrigði þar á bæ. Fyrir nokkrum árum virtist sem Kínverjum væri að takast að byggja upp karlaknattspyrnu og frambærilegt landslið, en þær vonir virðast að engu orðnar.
ístralía og Katar mætast á eftir. Sem stendur eru bæði lið með sjö stig eins og írak. Þarna verður spenna fram á síðustu stundu.
Á Afríkukeppninni vekur athygli að Fílabeinsströndin er undir gegn Botswana í hálfleik. íður hafði lið þeirra gert jafntefli gegn Madagascar. Reikna með að þetta starf verði laust til umsóknar eftir helgi…
Fínir leikir í gangi í Suður-Ameríkuhlutanum í dag. Hvernig er það – hefur Sýn ekki rétt á þeim leikjum? Hvað með að fá eitthvað af þessari forkeppni í íslenskt sjónvarp!
Fullt af leikjum í forkeppni HM í dag.
Norður-Kórea er komið áfram eftir heimasigur á Jórdaníu og Suður-Kórea er þar með einnig öruggt um sæti í lokaumferðinni. Þar með þriðji riðill afgreiddur.
Japan vann Tæland í öðrum riðli og er þar með komið áfram. Bahrein gæti tryggt sér sæti á eftir í leik gegn Óman.
Sádi Arabar eru yfir í hálfleik gegn Singapúr, en voru de facto komnir áfram úr fjórða riðli ásamt Úzbekum.
Kína er yfir gegn írak í fyrsta riðli undir lok fyrri hálfleiks. Þessi úrslit myndu fella íraka úr leik.
Engir leikir eru enn byrjaðir í fimmta riðli.
Meira síðar…
* * *
(Uppfært kl. 13:30)
Nei sko! írakar eru búnir að skora í tvígang gegn Kínverjum og tuttugu mínútur eftir! Það er magnað.
Sádarnir unnu hins vegar sinn riðil vandræðalaust. Úrslit eru þá fengin í tveimur riðlum af fimm – einn virðist nokkuð ráðinn en tveir eru galopnir.
…hlýtur að vera auglýsingin frá einhverjum bílaframleiðandanum sem hamrar á því að verkfræðingateymi fyrirtækisins hafi einkaaðgang að lúxushóteli með góðri sundlaug og mörgum veitingastöðum.
Það yrði þó áhugavert ef einhver bankinn tæki þetta upp í ímyndarherferð og sýndi löng myndskeið af jólagjöfunum til millistjórnenda sinna…
Ég fæ ókjör af ruslpósti. Nýjasta skriðan eru auglýsingar um „Blue sexy pill“ – sem ég reikna með að sé einhverskonar Viagra eftirlíkingar-svindl.
En ég er líka á nokkrum íslenskum fjölútsendingarlistum, án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Einhverra hluta vegna fæ ég t.d. alltaf sendan póst frá Stiklum – viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Svo sendir Óli Palli á Rás 2 mér vikulegan pistil um hvað sé á dagskránni í Rokklandi. Ekki hef ég grænan grun um hvers vegna mér var bætt inn á þann póstlista.
Eftir rúma þrjá sólarhringa verður famelían komin til Óðinsvéa. Það er þriðja stærsta borg Danmerkur, en við að lesa færsluna um hana á Wikipediunni finnst manni hún frekar vera smáþorp.
Jú – þarna má sjá smágerða eftirlíkingu af turninum sem einu sinni var sá næststærsti í Evrópu á eftir Eiffel-turninum. Það hafði ég ekki hugmynd um.
Hvað gerir maður annars í þessari ágætu borg sér til dægrastyttingar?
# # # # # # # # # # # # #
Einhvern veginn finnst mér eins og fótboltaárið í Englandi sé stöðugt að lengjast. Á dag verður dregið í fyrstu umferð deildarbikarsins… Uppfæri það á eftir.
Uppfært: Heimaleikur gegn Plymouth. Verra hefði það getað verið.
Því hefur verið haldið fram að KR-búningurinn svart- og hvítröndótti hafi orðið fyrir valinu vegna þess að Newcastle United hafi verið svo öflugt í byrjun aldarinnar. Þetta er þó væntanlega bara tilgáta.
Nú er miðað við að KR sé stofnað árið 1899 – þótt líklega megi þrefa um það ártal. Á ljósmynd sem tekin var í byrjun tuttugustu aldar og á að sýna KR-inga á æfingu sést að einn og einn maður er í röndóttri treyju. Það gæti bent til þess að félagsmenn hafi snemma litið svo á að æskilegt væri að eignast slíka flík.
Varla hafa menn þó haft sama skilning á hugtakinu félagsbúningur og síðar varð. KR var á þessum tíma fyrst og fremst vettvangur fyrir knattspyrnuæfingar en ekki keppni. Fótboltaleikir voru einkum milli félagsmanna á æfingum og þá var til lítils að allir væru í eins treyjum.
Ef hugmyndin um röndótta búninginn er komin fram rétt um 1900 er vandséð hvers vegna Newcastle hefði átt að vera fyrirmyndin. Liðið hafði lítil afrek unnið á knattspyrnuvellinum og Íslendingar virðast ekki hafa vitað neitt um ensku knattspyrnuna – hvað þá að þeir gætu skoðað ljósmyndir af enskum fótboltaliðum. Híns vegar gerðu þeir sér grein fyrir því að Bretar væru öðrum þjóðum fremri í fótbolta.
1912 verða KR-ingar Íslandsmeistarar í hvítum treyjum. Sigra Framara sem þá þegar eru komnir í bláa búninginn. Það er því ekki fyrr en eftir 1912 sem svarthvíti búningurinn verður óskoraður einkennisbúningur KR. – Gaman væri að vita hvenær það gerist nákvæmlega. Varla þó seinna en svona 1915-1917 giska ég á.
Hvenær fara Íslendingar hins vegar að fá dellu fyrir ensku knattspyrnunni? Mér sýnist það byrja strax uppúr fyrri heimsstyrjöldinni – eða fljótlega eftir 1920. Fyrstu erlendu knattspyrnufréttirnar sem eitthvað kveður að eru af landsleikjum, en mjög fljótlega er farið að segja úrslit í ensku knattspyrnunni. Þá fyrst gæti maður farið að trúa því að íslenskir fótboltamenn velji sér treyjur að fyrirmynd Englendinga.
Seinnipartinn fór Mánagötu-famelían í heimsókn til Guðrúnar og Elvars, til að sleikja sólina á svölunum hjá þeim. Fljótlega varð úr að okkur var boðið í kvöldmat og fram voru galdraðar ljúffengar andabringur, risotto og graskersmauk.
Barnið bisaði við matinn sinn, át misvel af einstökum tegundum og setti svo upp skeifu yfir kjötinu: „Ógisslegt“ sagði hún og var þegar skömmuð fyrir dónaskap.
Hún lét sér samt ekki segjast. Stakk upp í sig bita, tók hann strax útúr sér aftur, otaði honum framan í mig og endurtók: „Ógisslegt!“
Ég skoðaði bitann og varð að viðurkenna að það var fjandi mikil fita á honum. Ég tók því gaffalinn og útskýrði fyrir Ólínu að ég skyldi bara skera fituna af. „Gott!“ – sagði hún.
Um leið og ég var búinn að skilja á milli fitunnar og kjötbitans var sú stutta fljót til og stakk upp í sig… fitunni.
„Uhh… er þetta gott?“ – Spurðum við forviða. „Já – meira“, sagði grísinn.
Og við tók niðurskurður á andafituröndum fyrir barnið sem tróð í sig feitmetinu.
Þegar við vorum komin upp í rúm í kvöld með Vísnabókina var staðnæmst við „Fuglinn í fjörunni“. Ég var komin hálfa leið með að syngja kvæðið þegar barnið benti á teikninguna af mávinum og sagði: „Kannski var þetta fuglinn sem við átum í kvöld!“
Fékk til yfirlestrar bækling sem á að fara í prentun á næstu dögum. Á öftustu opnunni er gert ráð fyrir heilli síðu með auðum línum og yfirskriftinni: „Til minnis“.
Er hægt að hugsa sér slappari reddingu í umbrotsvinnu?
Skyldi það nokkru sinni í sögu mannsandans hafa gerst á undirbúningsstigi blaðs eða bókar að einhver í ritstjórninni hafi sagt: „Hey, svo verðum við endilega að hafa 1-3 línustrikaðar síður aftast – þar sem fólk getur sjálft punktað hjá sér athugasemdir! – Það kemur sér alltaf svo vel.“