Jahá, það er bara að verða liðin fjögur ár frá síðasta Evrópumóti í fótbolta. Þá átti ég í standandi vandræðum með að velja mér lið – fór svo í ferðalag til Skotlands dagana á undan og spáði eiginlega ekkert í þessu meir. Við vorum stödd í Glasgow daginn sem opnunarleikurinn fór fram. Steinunn var þreytt …
Monthly Archives: apríl 2008
Vinir Pols Pots
Nú þarf ég að slá upp í mínum eitursnjöllu lesendum. Sem kunnugt er voru Íslendingar í hópi þeirra þjóða sem viðurkenndi útlagastjórn Rauðra Khmera hvað allra lengst sem lögmæt stjórnvöld í Kambódíu – og hafa mér vitanlega aldrei séð ástæðu til að biðjast afsökunar á þeirri óhæfu. En hvaða ár var það aftur sem við …
Afleitir gestir
Vek athygli á þessum skrifum e. sjálfan mig.
Gauji Sam eða nokkrar aspir?
Var að horfa á gamlan skólabróður, Sigmund Gunnlaugsson, ræða um skipulagspólitík hjá Agli Helgasyni. Hann telur að lykillinn að betra mannlífi í Reykjavík sé sú að byggja fleiri hús eftir teikningum frá Guðjóni Samúelssyni. Það er góð og gild kenning. Á dag fór famelían í bæinn. Fyrst á leiksýningu í Þjóðleikhúsinu (Skoppa og Skrítla) – …
Frankenstein
Annan hvern mánudag fjalla ég um fræga vísindamenn úr sögunni í þættinum vítt og breitt á Rás 1. Á morgun verður tekið smáhliðarskref. Umfjöllunarefnið verður Victor Frankenstein – sem er oft ranglega kallaðurDr. Frankenstein eða jafnvel ruglað saman við sköpunarverk sitt. Mary Shelley var átján ára gömul þegar hún skrifaði verkið (nítján ára þegar það …
60 daga reglan
Á dag lærði ég um 60 daga regluna. Fór í Heiðrúnu að kaupa bjór. Stoppaði í leiðinni í sérvörudeildinni og spurði starfsmann út í Ardbeg-viskýið sem kom í hillurnar í fáeinar vikur og hvarf. Starfsmaðurinn mundi eftir Ardbeg og að það væri gott viský. Hann lagðist strax í hringingar. Á ljós kom að Ardbeg hafði …
Ærsladraugur á þjóðveginum
Laugardagur kl. 15:00 – Leiðrétting! Færð hafa verið fyrir því gild rök að greinin sem vísað er til hér að neðan sé ekki um Sturlu heldur alnafna hans. Biðst afsökunar á ruglingnum. Sturla Jónsson hefur verið mikið í fréttum upp á síðkastið. Færri vita að hann er áhugamaður um yfirskilvitleg fyrirbæri og hefur orðið fyrir …
Víkingsbúningurinn
Á heimasíðu Víkings stendur þessi klausa: „Vissir þú… – …að aðalkeppnisbúningur Víkings hefur verið sá sami frá stofnun félagsins?“ Þetta gengur upp miðað við það að fyrstu meistaraflokkslið Víkings voru í hinum klassíska svart/rauðröndótta búningi í upphafi þriðja áratugarins. En voru Víkingar alltaf í þessum búningi? Á skjalasafni íBR rakst ég á samþykkt frá árinu …
Trúarleiðtogi hylltur
Heill Hilmari Erni allsherjargoða fimmtugum! Tek undir hvert orð í ágætri færslu Orra Harðarsonar um þennan öðling og snilling.
Flot
Loksins, loksins! Ég er farinn að sjá fram á að losna undan steypurykinu hér á Minjasafninu eftir að gólfið í nýja andyrinu/tengibyggingunni var flotað í gær. Þetta er stór áfangi. Þegar ráðist var í verkið gleymdist hins vegar starfsmaður Minjasafnsins niðri í kjallara og honum var nokkuð brugðið þegar hann ætlaði að fara heim til …