Jæja. Þá er útgáfu Múrsins lokið. Sjálfur átti ég á sínum tíma hugmyndina að því að ráðast í að stofna pólitískt vefrit og var meira að segja búinn að ákveða nafnið áður en ég fór að hafa orð á þessu við aðra. Kveikjan að Múrnum var sú staðreynd að ég var farinn að eyða sífellt …
Monthly Archives: maí 2007
Móralska spurningin
Sumum finnst gaman að velta fyrir sér siðfræðiþrautum. Búum til eina slíka: Hugsum okkur að við séum farsæll stjórnmálamaður, krati sem er loksins kominn aftur í ráðherrastól eftir langa bið. Undir ráðuneytið fellur meðal annars skrifstofa jafnréttis- og vinnumála. Fyrstu dagana í embætti gengur eitt og annað á. Erlend ríkisstjórn sér t.d. ástæðu til að …
Lok, lok og læs
Er ekki ástæða til að óska Jóni Magnússyni til hamingju núna? Nokkurn veginn eina áþreifanlega atriðið í hinni alræmdu útlendingastefnu Frjálslynda flokksins gekk út á að afar brýnt væri að virkja frestunarákvæði varðandi komu Rúmena og Búlgara hingað til lands. Á kosningabaráttunni stóðu allir aðrir flokkar að því að skjóta niður málflutning Frjálslyndra í þessu efni …
Bjórinn í skápnum
Gunni þingmannsfrú skammar mig reglulega fyrir að blogga of mikið um viskýið sem ég drekk. Segist verða viðþolslaus við lesturinn og stökkva út á galeiðuna í stað þess að sinna heimsspeki og fjölskydulífi. Hann hefur hins vegar aldrei bannað mér að skrifa um bjórbirgðir heimilisins. Birgðastaðan á þeim bænum er reyndar með besta móti um …
Síðasta greinin
Á dag birtist þessi grein eftir mig á Múrnum. Þetta verður væntanlega síðasti Múrpistillinn minn, en það er orðið talsvert langt síðan ég hætti í ritstjórninni. Ætli ég hafi náð meira en fimm greinum síðasta árið? Stundum var það vikuskammturinn í gamla daga.
Sprungurnar
Fyrir rúmlega einu og hálfu ári var eldhúsið á Mánagötunni tekið í gegn. Á leiðinni reif ég niður skáp milli eldhússins og gangsins svo eftir stóð stórt gat. Upp í þetta gat var múrað svo veggurinn yrði sléttur og fínn. Núna er veggurinn farinn að springa. Svo sem ekkert stórvægilega og sprungurnar eru ekki margar …
Spuni
Það hefur verið merkilegt að fylgjast með spunanum úr röðum Samfylkingarinnar í tengslum við stjórnarmyndunina á dögunum. Fyrstu dagana var miklu púðri varið í að kenna VG-fólki um að ekki hafi komið til tals að mynda þriggja flokka miðju/vinstristjórn. Þannig hafi forystumenn í VG slegið þennan möguleika út af borðinu og gott ef Össur Skarphéðinsson …
Bláir sokkar
Fékk í hendur 25 ára afmælisblað Knattspyrnufélagsins Vals. Á forsíðunni er mynd af Íslandsmeistaraliði Vals frá 1930. Rak augun í að Valsmenn eru á þessum árum í bláum sokkum við rauða og hvíta búninginn. Er þetta upphaflegi búningurinn og hvenær skyldi það hafa verið aflagt? Megi Moggabloggið lenda í vondum tískuráðleggingum…
Týndur pólitíkus
Almennt séð er alltaf betra að hafa HJíLM á hausnum – nema maður búi á Flateyri… (Ókey – vondur djókur, en það þurfti bara einhver að láta hann flakka.) Líf fólksins á Flateyri er í uppnámi. Aðalvinnustaðurinn stefnir í lokun og ekkert nema fjöldaatvinnuleysi blasir við. Að óbreyttu geta íbúarnir þó huggað sig við jarðgöngin …
Adam var ekki lengi í paradís
Hann var sérkennilegur, þátturinn í kvöld sem fjallaði um hugmyndir vísindamanna um að finna mætti frum-manninn – Adam, ef svo mætti segja. Tilgátan gengur út á að stökkbreyting í einum einstaklingi hafi haft slík áhrif að hægt sé að tala um að á þeim tímapunkti hafi nútímamaðurinn orðið til. Út frá þessari kenningu var svo …